Gríðarlegt áfall að dragast inn í málið

Páll Matthíasson, forstjóri LSH.
Páll Matthíasson, forstjóri LSH. mbl.is/Golli

„Við helgum okkur varðveislu lífs svo það er okkur öllum sem hér störfum gríðarlegt áfall að dragast inn í mál, með hvaða hætti sem það kann að hafa verið, sem hefur einhvern snertiflöt við ályktun um að sú helgi hafi verið rofin,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, um plastbarkamálið svonefnda í venjubundnum föstudagspistli sínum. Þannig hljóti alvarlegasta ályktun óháðrar nefndar hér á landi um málið að vera að það kunni að varða 2. grein mannréttindasáttmála Evrópu sem fjalli um réttinn til verndunar lífs. 

Það hljóta allir að skilja að við á Landspítala, Háskóli Íslands og þeir aðilar sem hafa aðkomu að málinu þurfum andrými til að rýna einstaka þætti þessarar efnismiklu skýrslu nákvæmlega. Þeir lærdómar sem við drögum af málinu verða að byggjast á vandaðri yfirlegu og viðbrögð okkar verða að vera ígrunduð. Við munum taka þann tíma sem þarf í þessa vinnu og ljóst er að fram undan eru verkefni fyrir okkur öll.  Ég vil hvetja ykkur til að kynna ykkur skýrsluna vel, þó að þarna sé á ferðinni þungur lestur,“ segir Páll ennfremur.

Landspítalinn taki niðurstöðum nefndarinnar, tillögum og ábendingum af mikilli alvöru og leiti leiða til þess að mæta þeim eins og unnt sé. „Af því sem þegar hefur verið ákveðið get ég upplýst að mál er varða vísindasiðanefnd verða tekin upp við stjórnvöld, hlutum málsins verður vísað til siðfræðinefndar Landspítala og við höfum til skoðunar tillögu nefndarinnar um það með hvaða hætti unnt er að koma ekkju sjúklings til aðstoðar. Þá liggur fyrir að efni skýrslunnar kallar á samskipti við bæði Karolinska sjúkrahúsið og Karolinsku stofnunina og hef ég þegar óskað eftir fundi með forstjóra Karolinska sjúkrahússins til að ræða samskipti stofnananna. Eins og nærri má geta er þetta langt frá því að vera tæmandi listi, við munum ígrunda málið áfram og ég geri ráð fyrir ábendingum frá ykkur.“

Það sem mestu máli skipti séu hins vegar örlög Andemariam Taeklesebet Beyne. „Ungur fjölskyldufaðir og námsmaður, sjúklingur okkar og skjólstæðingur Landspítala, tók í örvæntingu sinni þátt í ólögmætri tilraun með skelfilegum afleiðingum. Vissulega fékk hann góða þjónustu hjá okkur fyrir og eftir hina afdrifaríku skurðaðgerð í Svíþjóð. Engu að síður brást svo margt sem ekki mátti bregðast og af virðingu við Andemariam og fjölskyldu hans ber okkur öllum skylda til að læra af þessu hörmulega máli. Það munum við gera.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert