Hálkublettir á Hellisheiði

Hálkublettir, hálka og éljagangur er nokkuð víða á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. Hálkublettir eru á Hellisheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Hálkublettir eða hálka er allvíða á Suðurlandi. Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi. 

Á Norðaustur- og Austurlandi er hálka á vegum og sums staðar él eða skafrenningur. Þæfingur og skafrenningur er á Breiðdalsheiði. 

Mikið er autt með suðausturströndinni en þó eru hálkublettir og hálka á köflum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert