Útgerðarmaður sektaður fyrir skattalagabrot

mbl.is/Júlíus

Kristjáni Vilhelmssyni, framkvæmdastjóra og einum stærsta eiganda útgerðarfélagsins Samherja, og eiginkonu hans hefur verið gert að greiða sex milljónir í sekt vegna skattalagabrota. Hjónin hafa ekki skilað skattframtali frá árinu 2005 og að auki hafa þau vantalið tekjur sínar og eignir.

„Ég hef svo sem ekkert um það að segja nema það að við borgum þá sekt,“ segir Kristján í samtali við Fréttablaðið en úrskurðurinn var birtur í síðustu viku, samkvæmt vef yfirskattanefndar. Þar eru Kristján og eiginkona hans ekki nafngreind en það er gert í Fréttablaðinu í dag. 

Úrskurður yfirskattanefndar tekur til áranna 2012 og 2013. Rannsókn ríkisskattstjóra leiddi í ljós að launagreiðslur Kristjáns námu 38 milljónum króna en að auki hafi hann fengið rúmar fimm milljónir í dagpeninga og bifreiðahlunnindi. Vaxtatekjur hans af innistæðum námu 25 milljónum og þá fékk hann rúmlega 1,2 milljarða króna greiddan í arð af hlutabréfum sínum.

Eiginkona Kristjáns fékk á sama tímabili alls 38 milljónir króna í arð af hlutabréfum sínum. Fasteignir þeirra hjóna voru metnar á 109 milljónir árið 2012 en höfðu hækkað í tæpar 134 milljónir ári síðar. Þá hafði skattinum ekki verið gert viðvart um rúmlega 485 milljónir á bankareikningi í Lúxemborg og hann ekki látinn vita af eignum sem voru geymdar í aflandsfélagi.

Frétt Vísis og Fréttablaðsins í heild

Hér er síðan hægt að lesa úrskurð yfirskattanefndar í heild 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert