Skólp fer í sjóinn í átta daga

Skólpdælustöðin við Faxaskjól.
Skólpdælustöðin við Faxaskjól. mbl.is/Golli

Vegna viðhalds á skólpdælustöð við Faxaskjól verður óhreinsuðu skólpi sleppt í sjó við stöðina dagana 20.-27. nóvember.  Endurnýja á undirstöður sem skólpdælurnar hvíla á en þetta er í fyrsta skipti síðan dælustöðin var gangsett árið 1992 sem það er gert. Til þess að verkið gangi eins hratt fyrir sig og mögulegt er verður unnið á vöktum allan sólarhringinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum.  

Veitur mælast til þess að fólk sé ekki í eða við sjóinn í nálægð við dælustöðina á meðan þetta ástand varir. Skilti verður sett upp við dælustöðina sem varar fólk við því að fara í sjó eða fjöru. Fylgst verður sérstaklega með fjörum í kringum dælustöðina á meðan á viðhaldinu stendur og fyrst eftir að því lýkur. Berist rusl í fjörur verða þær hreinsaðar af starfsfólki okkar. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mun sjá um vöktun á mengun í strandsjó.

Fráveitukerfið er sífellukerfi þar sem það vinnur allan sólarhringinn, alla daga ársins og rennslið í það stöðvast aldrei. Kerfið er hannað þannig að viss viðhaldsverk og viðgerðir verða ekki unnin nema að veita skólpinu í viðkomandi stöð óhreinsuðu í sjóinn á meðan.  

Í tilkynningunni er bent á að í gegnum fráveitukerfið fer allt það sem sturtað er niður í klósett sem og vatn frá sturtum, baði, vöskum, þvottavélum og öðrum heimilistækjum sem nota heitt eða kalt vatn. Þetta fer óhreinsað í sjó á meðan dælustöðin er óvirk, þ.m.t. rusl eins og eyrnapinnar, blautþurrkur, smokkar, tannþráður og dömubindi, sem eiga auðvitað aldrei að fara í klósettið heldur beint í almennt sorp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert