Gerðu ýtrustu kröfur

Símtal forsætisráðherra og seðlabankastjóra frá 6. október 2008 er birt …
Símtal forsætisráðherra og seðlabankastjóra frá 6. október 2008 er birt í heild sinni í Morgunblaðinu í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Davíð Oddsson, þáverandi formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, bjóst við að þrautavaralán sem fyrirhugað var að veita Kaupþingi í byrjun október 2008, að andvirði 500 milljónir evra, yrði ekki endurgreitt af bankanum. Fullyrðingar forsvarsmanna bankans um annað væru „ósannindi“ eða „óskhyggja“.

Þetta má lesa í endurriti af símtali milli hans og Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, sem þeir áttu rétt fyrir hádegi mánudaginn 6. október, í þann mund sem bankakerfið íslenska riðaði til falls. Morgunblaðið hefur endurritið undir höndum og birtir það í heild sinni í blaðinu í dag.

Í símtalinu sagði seðlabankastjóri að lánið yrði ekki veitt nema með ýtrustu veðum og var forsætisráðherra sammála því. Af símtalinu, sem tekið var upp af Seðlabankanum án vitundar viðmælendanna tveggja, má ráða að forsætisráðherra hefur í fyrri samtölum við Seðlabankann kallað eftir svörum um hvort hægt væri að veita Kaupþingi fyrirgreiðslu sem tryggt gæti rekstrarhæfi þess.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert