Bíða enn eftir niðurstöðum vísindamanna

Öræfajökull. Vís­inda­menn Jarðvís­inda­stofn­un­ar Há­skóla Íslands vinna nú úr sýnum sem …
Öræfajökull. Vís­inda­menn Jarðvís­inda­stofn­un­ar Há­skóla Íslands vinna nú úr sýnum sem þeir tóku úr jöklinum. mbl.is/RAX

Engar ákvarðanir voru teknar á fundi Almannavarna nú í kvöld varðandi Öræfajökul. Óvissuástandi var lýst yfir á svæðinu í gær og hafa vísindamenn Jarðvísindastofnunar í dag unnið að því að rannsaka sýni sem safnað var í ferð þeirra, Veður­stof­unn­ar og Al­manna­varna yfir jökulinn í gær.

Rögnvaldur Ólafsson, verkefnastjóri almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra, segir engar niðurstöður hafa legið fyrir í dag sem gefi ástæðu til að breyta núverandi óvissustigi. „Það voru engar ákvarðanir teknar. Það er ekkert að frétta af rannsóknum, en mögulega er einhverra upplýsinga að vænta á morgun,“ sagði hann.

Þangað til haldist óvissuástandið óbreytt og litakóði Öræfajökuls vegna flugs verður áfram gulur. „Lögregla er því áfram með viðveru á svæðinu, auk þess sem þetta svæði er mjög vel vaktað af Veðurstofunni allan sólarhringinn.

Þrír jarðskjálft­ar mæld­ust við Öræfa­jök­ul í gær­kvöldi og í nótt, áframhaldandi skjálftavirkni hefur verið í dag en enginn skjálftanna hefur verið yfir einn. 

Vís­inda­menn Jarðvís­inda­stofn­un­ar Há­skóla Íslands og Veður­stof­unn­ar ásamt full­trú­um Al­manna­varna flugu yfir Öræfa­jök­ul í gær. Farið var á þyrlu Land­helg­is­gæsl­unn­ar og flug­vél Isa­via auk þess sem vís­inda­menn voru við árn­ar og söfnuðu vatni. Gerðar voru mæl­ing­ar á gasi og raf­leiðni vatns í ám, vatns­sýn­um safnað og yf­ir­borðshæð jök­uls­ins mæld í öskju Öræfa­jök­uls.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert