Lögreglan á Norðurlandi vestra vekur athygli á versnandi færð á Facebook-síðu sinni en af þeim sökum er til að mynda Holtavörðuheiði lokuð og skilyrði víða annars staðar í umdæminu slæm.
Samkvæmt upplýsingu á vefsíðu Vegagerðarinnar er hringvegurinn lokaður frá Hrútafirði að Vatnsdal. Auk þess er ófært um sunnanvert Snæfellsnes og Fróðárheiði en vindur á sunnanverðu Snæfellsnesi fer í allt að 36 m/s.
Eins og áður hefur komið fram er tekið að hvessa af norðaustri á nýjan leik og við það eykst skafrenningur víða um landið norðan- og austanvert og skyggni versnar.