Greiðslur úr sjúkrasjóðum vaxa mikið

Greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga launafólks hafa aukist mikið á umliðnum …
Greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga launafólks hafa aukist mikið á umliðnum mánuðum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Greiðslur til launafólks úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga hafa aukist verulega á þessu ári.

Dagpeningagreiðslur úr sjúkrasjóði VR hafa aukist umtalsvert á árinu og eru geðraskanir og stoðkerfisvandamál stærslu sjúkdómaflokkarnir.

Greiðslur sjúkradagpeninga úr styrktarsjóði BSRB eru 30% hærri á fyrstu 10 mánuðum ársins en allt árið í fyrra og hjá Einingu-Iðju er 15-20% aukning milli ára, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert