Þrenn verðlaun á Stevie Awards

Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu.
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu. Mynd/ Magasínið á K100

Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu, hlaut þrenn verðlaun á Stevie Awards-verðlaunaafhendingunni sem haldin var í New York um síðustu helgi.

Verðlaunin eru veitt konum sem hafa skarað fram úr í viðskiptum eða sem stjórnendur í atvinnulífi um allan heim og voru nú veitt í 14 sinn. Inga Hlín hlaut gullverðlaun sem frumkvöðull ársins, silfurverðlaun sem stjórnandi ársins og silfur sem kona ársins í flokki stjórnvalda og stofnana fyrir störf sín hjá Íslandsstofu síðustu ár.

„Ég er ótrúlega þakklát og glöð með þennan heiður en ég lít fyrst og fremst á þetta sem viðurkenningu á þeim árangri sem við höfum náð með samtakamætti allra þeirra sem koma að því að markaðssetja Ísland sem áfangastað. Undanfarin ár hafa fyrirtæki og hið opinbera unnið saman að því að kynna Ísland undir merkjum Inspired by Iceland sem er orðið þekkt og verðmætt vörumerki. Þessi samtakamáttur hefur skipt sköpum fyrir okkur Íslendinga við að byggja upp íslenska ferðaþjónustu og fanga athygli heimsins sem áfangastaður. Það er mikilvægt að við höfum í huga að við erum í gríðarlegri samkeppni við aðra áfangastaði í heiminum en höfum vakið athygli fyrir samstarf og samstöðu hér á landi í þessari verðmætustu útflutningsgrein þjóðarinnar og af því er ég afar stolt,“ segir í tilkynningu frá Íslandsstofu. 

Stevie Awards fyrir konur í viðskiptum heiðra stjórnendur, frumkvöðla og atvinnurekendur á heimsvísu. Stevie-verðlaunin eru talin vera ein af fremstu viðskiptaverðlaunum í heiminum. Yfir 1.500 tilnefningar bárust í ár frá 25 löndum. Um 170 stjórnendur víða um heim sátu í dómnefnd sem valdi úr tilnefningunum.

Rætt var við Ingu Hlín í Magasíninu á K100 um verðlaunin, þýðingu þeirra fyrir Ísland og hana persónulega. Inspired by Iceland-átakið var stofnað eftir gosið í Eyjafjallajökli og viðurkenndi hún að það færi annað slagið um hana smá hrollur þegar fréttir af hræringum í Öræfajökli eru ræddar. 

Viðtalið má hlusta á hér að neðan í heild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert