Þrír sendifulltrúar til Bangladess

Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, Margrét Rögn Hafsteinsdóttir og Dóra Vigdís Vigfúsdóttir …
Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, Margrét Rögn Hafsteinsdóttir og Dóra Vigdís Vigfúsdóttir eru á leið til Bangladess. Ljósmynd/Rauði kross Íslands

Þrír sendifulltrúar Rauða krossins á Íslandi eru komnir til Cox‘s Bazar í Bangladess til að hefja störf á tjaldsjúkrahúsi sem komið hefur verið upp fyrir flóttafólk frá Rakhine-héraði í Búrma. Aðstæður á vettvangi eru mjög erfiðar en yfir 600.000 manns hafa flúið blóðug átök og ofsóknir í Búrma.  Undanfarna tvo mánuði hafa átta sendifulltrúar Rauða krossins á Íslandi starfað við tjaldsjúkrahúsið, þar af þrír sem tóku þátt í uppsetningu þess.

„Þökk sé Mannvinum Rauða krossins, mánaðarlegum styrktaraðilum, hefur Rauði krossinn á Íslandi getað brugðist skjótt við og hefur samtals sent 11 sendifulltrúa til starfa á tjaldsjúkrahúsið,“ segir í fréttatilkynningu frá Rauða krossinum.

Á tjaldsjúkrahúsinu munu hjúkrunarfræðingarnir Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, Margrét Rögn Hafsteinsdóttir og Dóra Vigdís Vigfúsdóttir starfa með teymi á vegum norska og finnska Rauða krossins. Félögin opnuðu tjaldbúðir að beiðni Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC). Á tjaldsjúkrahúsinu eru 60 sjúkrarúm og fær flóttafólkið þar heilbrigðisaðstoð auk þess sem mat er úthlutað og önnur aðstoð veitt. Margir eru örmagna og með áverka þegar þeir koma yfir landamærin til Bangladess en á tjaldsjúkrahúsinu eru 60 sjúkrarúm, segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Atla Viðari Thorstensen, sviðsstjóra hjá Rauða krossinum, í tilkynningunni að hjálparstarf Rauða krossins sé gríðarlega umfangsmikið beggja vegna landamæra Búrma og Bangladess. „Við höfum opnað tjaldspítala með 60 rúmum þar sem særðir og sjúkir fá nauðsynlega heilbrigðisaðstoð. Þá er ennfremur umfangsmikil aðstoð veitt örmagna fólki eftir erfiðan flótta og því veitt aðgengi að neyðarskýlum, salernisaðstöðu, það fær mat og drykk og lögð hefur verið áhersla á að koma upp öruggum svæðum fyrir konur og börn. Þá er lögð áhersla á að sameina fjölskyldur og ástvini sem hafa tapað hvert öðru á flóttanum sem og að grafast fyrir um örlög annarra ástvina. Ástandið sé grafalvarlegt og neyðin enn gríðarlega mikil, fólk getur enn lagt neyðarsöfnuninni lið með því að senda sms-ið TAKK í númerið 1900.“

Atli segir jafnframt að Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn muni með aðgerðum sínum ná til að minnsta kosti 200.000 manns. Auk þess sem að hann útilokar ekki að fleiri íslenskir sendifulltrúar verði sendir á vettvang. En afar sjaldgæft er að Rauði krossinn sendi jafn marga sendifulltrúa og nú hefur verið gert.

Hægt er að leggja neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi lið með því að senda sms-ið TAKK í númerið 1900 og styrkja þannig söfnunina um 1900 kr. Þá er einnig hægt að nota Kass appið með því að nota KassTag-ið takk@raudikrossinn eða leggja inn á reikning 0342-26-12, kt. 530269-2649.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert