Mælirinn datt út í Hamarsfirði

Vegagerðin bíður enn með mokstur á Austurlandi þangað til veðrið …
Vegagerðin bíður enn með mokstur á Austurlandi þangað til veðrið gengur niður. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Fjöldi vega um landið er enn lokaður vegna óveðurs og ófærðar. Vegagerðin er byrjuð að moka á Norðurlandi, en fyrir austan Akureyri er beðið með mokstur vegna óveðurs. Holtavörðuheiði er einnig enn lokuð.

Þá varar Vegagerðin sérstaklega við gríðarlega miklum vindhviðum í Hamarsfirði við Djúpavog, en vegurinn er ófær vegna óveðurs og datt vindmælir Vegagerðarinnar út í gærkvöldi í miklum hviðum.

Lokað er um Holtavörðuheiði, Víkurskarð, Hófaskarð, Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Fagradal og Fjarðarheiði. 

Hálka, hálkublettir og snjóþekja eru á Vesturlandi og Vestfjörðum og nokkur hálka eða hálkublettir er víða á Suðurlandi.

Mokstur er hafinn á Öxnadalsheiði og á Ólafsfjarðarmúla. Þæfingur, snjóþekja og skafrenningur er víða í Eyjafirði.

Á vef Vegagerðarinnar má sjá að vindmælir í Hamarsfirði mældi hviður sem voru mest 65,8 m/s í gærkvöldi. Á ellefta tímanum dettur mælirinn aftur á móti út. Vindhraði á sama tíma var um 30 m/s.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert