Áfram í farbanni eftir tungubit

Hæstiréttur Íslands.
Hæstiréttur Íslands. mbl.is/Golli

Hæstiréttur Íslands hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að ástralskri konu verði gert að sæta farbanni til miðvikudagsins 27. desember.

Konan er grunuð um að hafa bitið tunguna af eiginmanni sínum aðfaranótt 1. nóvember.

Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að samkvæmt upplýsingum lögreglu er rannsókn málsins á lokastigi og verður ákæra gefin út von bráðar. Beðið er lokaskoðunar og læknisvottorða vegna áverka beggja brotaþola.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert