Lísa og Bergþóra aðstoða Katrínu

Lísa Kristjánsdóttir.
Lísa Kristjánsdóttir. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lísa Kristjánsdóttir og Bergþóra Benediktsdóttir hafa verið ráðnar aðstoðarmenn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Lísa hefur verið aðstoðarmaður Katrínar sem formanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs frá árinu 2013. Hún hefur starfað innan VG um árabil og meðal annars verið kosningastjóri hreyfingarinnar fyrir allar þingkosningar frá árinu 2007.

Lísa var aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra árin 2009 - 2010 og sat í Þjóðleikhúsráði á árunum 2009-2013. Lísa er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og leggur nú stund á MBA-nám við Háskóla Íslands með starfi.

Bergþóra hefur verið framkvæmdastjóri þingflokks VG en áður gegndi hún starfi mannauðsstjóra hjá Plain Vanilla.

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert