Fleiri afgreiðsludagar og lengri afgreiðslutími

Með auknum pakkasendingum vegna vaxandi netverslunar hefur álag á pósthús aukist mikið og fyrir vikið má búast við miklum fjölda sendinga í desember. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandspósti.

Vegna þessa verða afgreiðsludagar fleiri í desember og afgreiðslutími lengdur. Þannig verður opið alla daga fram að jólum á pósthúsum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk þess sem afgreiðslutími pósthúsa á öðrum stærri stöðum verður lengdur frá og með 17. desember.

Frekari upplýsingar um afgreiðslutíma má sjá á jólasíðu Íslandspósts: postur.is/jol. Þar má einnig finna upplýsingar um það hvenær sendingar til viðtakenda erlendis þurfi að skila sér á pósthús eigi að vera öruggt að þær skili sér til þeirra fyrir jólin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert