Fjórar líkamsárásir í nótt

mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Fjórar líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt en þær komu allar upp innan sama svæðis, þ.e. í póstnúmerum 101 og 105. Málin eru til rannsóknar hjá lögreglunni, að því er segir í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að mjög rólegt var á höfuðborgarsvæðinu í nótt.

Upp úr kl. fimm í morgun var maður handtekinn í Hafnarfirði eftir innbrot í bifreiðar og húsnæði. Hann gistir nú fangageymslur og verður yfirheyrður síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert