Sigketillinn heldur áfram að dýpka og stækka

Sigketillinn í öskju Öræfajökuls heldur áfram að dýpka og stækka í samræmi við viðvarandi aukna jarðhitavirkni. Þetta sýna nýjustu mælingar í sigkatlinum og ennfremur að vatn renni frá honum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum fundar í vísindaráði almannavarna um Öræfajökul sem fram fór í dag.

Þar segir ennfremur að smáskjálftum, sem mælst hafi í Öræfajökli, hafi fjölgað undanfarna viku. Þannig hafi mælst þar 160 smáskjálftar á þeim tíma. Svo margir skjálftar hafi ekki mælst þar áður. Skjálftarnir séu aðallega dreifðir í og við öskjuna í efstu 10 kímómetrum jarðskorpunnar. Ennfremur kemur fram að mælingar í Skaftafellsá, Virkisá, Kotá og Kvíá sýni óverulegar breytingar undanfarnar vikur. Mælingar á leiðni og efnasamsetningu sýni að jarðhitavatn komi fram í Kvíá. Ennfremur segir í niðurstöðunum:

„Frekari túlkun á mælingum á jarðskorpubreytingum síðustu ára sýnir smávægilegar færslur við suðurjaðar jökulsins. Atburðarás og mælingar á svæðinu benda til minniháttar kvikuinnskots á um 2-6 km dýpi undir fjallinu. Á síðustu vikum hefur vöktun við Öræfajökul verið aukin til muna, bætt hefur verið við vatnamælum, jarðskjálftamælum og síritandi GPS tæki auk nokkurra vefmyndavéla. Rannsóknir á vettvangi hafa verið auknar.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert