Hvetur fólk til að fylgjast með mannaferðum

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að tryggja að vel sé gengið frá gluggum og hurðum og til að fylgjast með grunsamlegum mannaferðum hjá nágrönnum.   

Brotist hefur verið inn í tvö hús í Kópavogi í gær og fyrra dag og miklum verðmætum stolið. Að sögn lögreglu var farið inn í heimahús í Kópavogi í gærmorgun eftir að heimilisfólk var farið til vinnu og miklum verðmætum stolið, bæði skarti og raftækjum, en tveir menn sáust fara frá húsinu um morguninn.

Málið er enn í rannsókn, sem og innbrot í hús í austurbæ Kópavogs á þriðjudag. Ekki er þó vitað, að sögn lögreglu, hvort að sömu einstaklingar voru þar að verki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert