Oddný formaður þingflokks Samfylkingarinnar

Oddný G. Harðardóttir.
Oddný G. Harðardóttir. mbl.is/Eggert

Oddný G. Harðardóttir var kosin þingflokksformaður Samfylkingarinnar í vikunni og Guðmundur Andri Thorsson varaformaður þingflokksins. Ritari er Albertína Friðbjörg Elíasdóttir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá þingflokki Samfylkingarinnar.

Oddný hefur verið þingmaður Samfylkingarinnar frá árinu 2009 og gegndi hún þingflokksformennsku 2011–2012, 2012–2013 og síðan 2016. Oddný er fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og fjármálaráðherra.

Guðmundur Andri Thorsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir voru kosin á Alþingi í síðustu þingkosningum sem fram fóru í október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert