Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og víða él og skafrenningur á fjallvegum. Þungfært og stórhríð er á Fjarðarheiði. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði sem og á Vatnsskarði eystra. Mjög hvasst er í Hamarsfirði og almennt á Austfjörðum, segir á vef Vegagerðarinnar. Snjóþekja eða hálka er með suðausturströndinni, mjög hvasst og skafrenningur.
Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Suður- og Vesturlandi og skafrenningur á fjallvegum.
Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum, sumstaðar skafrenningur. Ófært er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Eins er ófært norður í Árneshrepp.
Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur og skafrenningur. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Siglufjarðarvegi. Þungfært er á Hólasandi og Dettifossvegur er ófær.