Verði seldar fyrir rúman milljarð

Fasteignirnar að Fannborg 2, 4 og 6 hafa hýst bæjarstjórnarskrifstofurnar.
Fasteignirnar að Fannborg 2, 4 og 6 hafa hýst bæjarstjórnarskrifstofurnar. Ljósmynd/Kópavogsbær

Bæjarráð Kópavogs samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja til við bæjarstjórn að gengið yrði til samninga við Stólpa ehf. vegna sölu á fasteignunum að Fannborg 2,4, og 6 sem hýst hafa bæjarskrifstofur bæjarins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ.

„Húseignir bæjarins að Fannborg 2, 4 og 6 voru auglýstar til sölu í ágústlok og var gefinn frestur til að skila tilboðum til 12. október. Fjögur tilboð bárust. Tilboð Stólpa ehf. hljóðar upp á 1.050.000.000 kr. (einn milljarð og 50 milljónir),“ segir enn fremur.

Þorri starfsemi bæjarskrifstofa Kópavogs er nú fluttur að Digranesvegi 1. Bærinn festi kaup á því húsnæði fyrir 585 milljónir króna í mars 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert