Dettifossvegur er lokaður

Vegir eru víða greiðfærir á Suður- og Vesturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en þó er eitthvað um hálku og hálkubletti.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Vestfjörðum. Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Norðurlandi. Skafrenningur er á Hófaskarði og á Sandvíkurheiði. Dettifossvegur er lokaður. 

Hálka, snjóþekja og hálkublettir er á vegum á Austurlandi og víða skafrenningur. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði. Hálka eða hálkublettir eru með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert