Leiðir til að lyfta fólki upp úr fátækt

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Það er afar brýnt að bæta kjör og auka lífsgæði okkar fólks. Skerðingar, króna á móti krónu, verður að afnema strax og það er margt fleira sem við leggjum áherslu á að verði að veruleika í fjárlagavinnu Alþingis,“ er haft eftir Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, formanni Öryrkjabandalags Íslands, á vef samtakanna. „Við viljum sjá tekju- og eignamörk hækkuð og lífeyri almannatrygginga hækka verulega svo fólk geti framfleytt sér í íslensku samfélagi. Það verður að lögfesta NPA, notendastýrða persónulega aðstoð, fyrir áramót. Þetta eru réttlætismál sem þola ekki bið.”

Í frétt Öryrkjabandalagsins kemur fram að Þuríður Harpa hafi átti fund með Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og jafnréttisráðherra, í vikunni, ásamt fleiri fulltrúum ÖBÍ. Þar var farið  yfir tillögur bandalagsins um brýnar og mikilvægar úrbætur í málefnum öryrkja og fatlaðs fólks.

„Ráðamenn hafa lýst yfir auknum fjárframlögum til heilbrigðismála, menntamála og samgöngumála, sem er góðra gjalda vert. Hins vegar hafa ekki komið yfirlýsingar um aukin framlög til almannatrygginga og annarra málaflokka sem heyra undir félags- og jafnréttisráðherra. Því var lögð sérstök áhersla á brýnustu kröfur Öryrkjabandalags Íslands á fundinum með ráðherra og honum afhent minnisblað þar sem tillögur bandalagsins eru settar fram í fimmtán liðum ásamt ítarlegum rökstuðningi,“ segir í frétt ÖBÍ.

 „Það er jákvæður tónn í viðræðum okkar við stjórnvöld og samtalið er lifandi. Það er fagnaðarefni í sjálfu sér, sem og sú staðreynd að sérstaklega er fjallað um þessi máli í stjórnarsáttmálanum,“ er haft eftir Þuríði Hörpu. Vonandi hefur það í för með sér að við náum okkar markmiðum. En það þarf strax að grípa til aðgerða og við verðum að sjá þess merki í fjárlögum næsta árs. Við höfum kynnt tillögur okkar ítarlega fyrir stjórnvöldum. Nú fylgjum við því eftir með því að kynna þær almenningi. Ég hef trú á því að fólk muni taka undir tillögur okkar og hvetji þingmennina okkar til góðra verka. Við erum að leggja til skýrar og rökstuddar leiðir sem ættu að tryggja fólki mannsæmandi afkomu og lyfta því upp úr fátækt. Getum við ekki öll verið sammála um það?” 

Hér má lesa minnisblað ÖBÍ sem afhent var félags- og jafnréttisráðherra í vikunni. Þar er gerð grein fyrir tillögum ÖBÍ í fimmtán liðum, ásamt rökstuðningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert