Vísbendingar um aukinn hegðunarvanda í skólum

Kennarar eru undir miklu álagi í starfi sínu og mismunandi …
Kennarar eru undir miklu álagi í starfi sínu og mismunandi reynsla af ýmsum þáttum sem samið var um í síðustu samningum. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Starfsumhverfi kennara er í mörgum grunnskólum talið ófullnægjandi. Þetta er ein niðurstaða samantektar samstarfsnefndar sveitarfélaga og grunnskólakennara sem kannaði starfsumhverfi kennara og vinnumat í skólum.

Skortur er á ýmsum aðbúnaði eins og tölvum, skjávörpum og kennslugögnum. Margir kennarar segja ekki tekið tillit til þess tíma sem þeir þurfi til að ljúka verkefnum, að því er fram kemur í fréttaskýring um þessi mál í Morgunblaðinu í dag.

Þá kemur fram hjá nefndinni að vísbendingar séu um að hegðunarvandamál hafi aukist mjög og styrkja þurfi viðbragðsáætlanir vegna erfiðra nemenda.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert