Anna María er varaformaður KÍ

Anna María Gunnarsdóttir einn af fjórum frambjóðendum til varaformanns Kennarasambands …
Anna María Gunnarsdóttir einn af fjórum frambjóðendum til varaformanns Kennarasambands Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Anna María Gunnarsdóttir er nýr varaformaður Kennarasambands Íslands. Hún hlaut 1.653 atkvæði eða 52,86% greiddra atkvæða. Fjórir félagsmenn KÍ buðu sig fram í embættið. 

Ásthildur Lóa Þórsdóttir hlaut 845 atkvæði eða 27,02%, Heimir Björnsson hlaut 259 eða 8,28%, Simon Cramer Larsen hlaut 135 atkvæði eða 4,32% og auðir seðlar voru 235 eða 7,52%.  

Upphaflega buðu sex sig fram til varaformanns en tveir drógu framboð sitt til baka vegna vantrausts á nýkjörinn formann KÍ, Ragnar Þór Pétursson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert