Laun ríkisstarfsmanna leiðrétt

Fulltrúar ASÍ, BSRB, Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka atvinnulífsins og …
Fulltrúar ASÍ, BSRB, Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka atvinnulífsins og íslenska ríkisins undirrituðu samkomulagið. Ljósmynd/ Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Laun ríkisstarfsmanna innan BSRB munu hækka um að meðaltali 1,3 prósent samkvæmt samkomulagi um launaþróunartryggingu sem undirritað var í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í morgun. Ríkisstarfsmenn innan ASÍ munu fá um 1,6 prósent hækkun að meðaltali.

Útfærsla á hækkuninni hefur ekki verið ákveðin en samkvæmt tilkynningu á vef ráðuneytisins verður hún formfest með nánara samkomulagi á næstunni.

Launaþróunartryggingin byggist á rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá október 2015 en aðild að því eiga íslenska ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Alþýðusamband Íslands, BSRB og Samtök atvinnulífsins.

„Í rammasamkomulaginu er kveðið á um að þeim sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum verði bætt umframlaunaskrið á almennum vinnumarkaði. Með því er ætlunin að tryggja að laun opinberra starfsmanna sitji ekki eftir í almennri launaþróun,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur fram að horft hafi verið til þróunar launa á almenna markaðinum annars vegar og hjá félögum í BSRB hins vegar á tímabilinu nóvember 2013 til nóvember 2016. Þróunin verður mæld áfram og leiðrétt vegna áranna 2017 og 2018, þyki tilefni til.

Laun félagsmanna BSRB og ASÍ sem starfa hjá sveitarfélögum taka ekki breytingum nú þar sem þau hafa hækkað meira en laun á almennum markaði á tímabilinu, samkvæmt tilkynningunni.

„Laun þessara hópa verða mæld áfram og gæti komið til  hækkana verði launaskrið á almenna markaðinum meira en hjá þeim.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert