Erlent þjófagengi handtekið

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á Suðurlandi handtók í gær fjóra erlenda menn sem eru grunaðir um að hafa verið að stela í verslunum á Selfossi. Lögreglan segir að mennirnir hafi verið með ríkisfang í Georgíu.

Að sögn lögreglu hafa þrír þeirra stöðu hælisleitenda á Íslandi en einn kvaðst vera ferðamaður hér og framvísaði félagsskírteini sem hann sagði vera frá International police associaton (IPA) en hann væri lögreglumaður í heimalandi sínu. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Þá segir, að mennirnir hafi verið færðir í fangahús á Selfossi og yfirheyrðir í gær og aftur í morgun en verður að öllum líkindum sleppt nú á eftir. 

„Í fórum mannanna fundust, auk ætlaðs þýfis, kvittanir fyrir sendingum peninga frá Íslandi á síðustu tveimur dögum sem nema hundruðum þúsunda króna.  Öflug öryggismyndavélakerfi verslana hafa reynst mjög hjálpleg við rannsóknina. Grunur leikur á að mennirnir hafi stundað iðju sína í verslunum á höfuðborgarsvæðinu einnig. Við rannsóknina hefur lögreglan notið aðstoðar alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert