Bónorð og tenórar við skautasvellið

Tenórarnir Kristján Jóhannsson, Elmar Gilbertsson og Jóhann Friðgeir Valdimarsson sungu  inn jólin fyrir gesti og gangandi við skautasvellið á Ingólfstorgi í kvöld á Þorláksmessu. Margmenni fylgdist með þeim og stemningunni í bænum, en uppákoma við skautasvellið þar sem maður nokkur skellti sér á skeljarnar og bað kærustunnar stal þó senunni.

Ólafur Hjálmarsson fékk að notast við míkrófón og bað kærustu sinnar, Söru Natöshu Hansen Baldvinsdóttur, í viðurvist mikils fjölda gesta miðbæjarins. Ekki stóð á svari og játaðist Sara Ólafi við fögnuð viðstaddra.

Ólafur fór á skeljarnar við skautasvellið á Ingólfstorgi í kvöld …
Ólafur fór á skeljarnar við skautasvellið á Ingólfstorgi í kvöld og fékk að launum já frá Söru.
Sara sagði já við bónorðinu og var þeim vel fagnað …
Sara sagði já við bónorðinu og var þeim vel fagnað af gestum og gangandi.
Tenórarnir Kristján Jóhannsson, Elmar Gilbertsson og Jóhann Friðgeir Valdimarsson sungu …
Tenórarnir Kristján Jóhannsson, Elmar Gilbertsson og Jóhann Friðgeir Valdimarsson sungu við skautasvellið í kvöld.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert