535 milljarðar á þessu ári hjá ferðaþjónustunni

Ferðamenn við Gullfoss.
Ferðamenn við Gullfoss. mbl.is/Ómar Óskarsson

Gjaldeyristekjur þjóðarinnar vegna ferðaþjónustu á þessu ári munu nema um 535 milljörðum króna á þessu ári gangi spá Samtaka ferðaþjónustunnar eftir. Það nemur um 40% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar og 15,5% aukningu milli ára.  Þetta kemur fram í áætlun samtakanna sem Fréttablaðið greinir frá í dag.

Haft eftir Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra samtakanna, að þetta sé í takt við það sem gert hafi verið ráð fyrir og sýni fram á mikilvægi ferðaþjónustunnar. Bent er á að þetta sé minni vöxtur en fjölgun ferðamanna milli ára. Vísar Helga til erfiðra ytri skilyrða og versnandi samkeppnishæfni eins og sterks gengis krónunnar sem ástæðna fyrir því. Þá dvelji ferðamenn skemur og nýti sé ekki þjónustu í jafnmiklum mæli og áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert