Alvarlegasta hópslys á öldinni

Níu særðust alvarlega í hópslysinu sem varð þegar rútan valt.
Níu særðust alvarlega í hópslysinu sem varð þegar rútan valt. mbl.is/Jónas Erlendsson

Ekki hafa eins margir slasast alvarlega í einu slysi hér á landi á þessari öld og í hópslysinu í gær þegar rúta með 44 kínverska ferðamenn fór út af þjóðveginum vestan við Kirkjubæjarklaustur. Tólf voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlum Landhelgisgæslunnar á Landspítalann og 35 voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Einn farþeganna er látinn en það var kínversk kona á þrítugsaldri.

Allar heilbrigðisstofnanir á Suðurlandi voru í viðbragsstöðu frá Hveragerði og Þorlákshöfn að Hvolsvelli í gær og allt slökkvilið frá Selfossi, Hvolsvelli, Vík og Klaustri var kallað út. Þá var óskað eftir aðstoð frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu sem mannaði slökkvistöðvar á Selfossi og Hvolsvelli auk þess sem bílar voru sendir á slysstað.

Þyrlur gæslunnar lenda við Landspítalann eftir rútuslys við Kirkjubæjarklaustur. Styrmir …
Þyrlur gæslunnar lenda við Landspítalann eftir rútuslys við Kirkjubæjarklaustur. Styrmir Sigurðsson, yfirmaður sjúkraflutninga á Suðurlandi, man ekki eftir öðru eins fjöldaslysi á 21. öldinni. mbl.is/Árni Sæberg

Styrmir Sigurðsson, yfirmaður sjúkraflutninga við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, segist í samtali við mbl.is ekki muna eftir eins miklum fjölda alvarlega slasaðra á landi og í gær.

„Þetta er mjög stórt á hvaða mælikvarða sem er og með því stærra sem ég man eftir,“ segir Styrmir.

Styrmir var um borð í TF-LÍF þegar hún lenti á slysstað rétt rúmlega 12 í gær. „Á þeim tíma voru bráðaflokkaðir átta rauðir, sem reyndust síðan vera níu, og þrír gulir,“ segir Styrmir en rauður stendur fyrir alvarlega slasaða en gulur fyrir slasaða.

Slysið varð vestan af Kirkjubæjarklaustri rétt fyrir hádegi í gærdag.
Slysið varð vestan af Kirkjubæjarklaustri rétt fyrir hádegi í gærdag. Kort/mbl.is

„Fyrst á vettvang voru hjúkrunarfræðingur og varðstjóri frá Kirkjubæjarklaustri og þau voru búin að bráðaflokka vel þegar við mætum á vettvang. Þá var búið að nýta rútur frá ferðaþjónustuaðilum til að flytja alla græna, sem gátu gengið, af slysstað,“ segir Styrmir en 33 voru fluttir á fjöldahjálparstöð á Klaustri.

Minna slasaðir voru fluttir til aðhlynningar og skoðunar á HSu, sem létti mjög á álaginu á Landspítala að sögn Styrmis. Styrmir segir það hafa skipt miklu máli að önnur þyrla Gæslunnar hafi verið við æfingar við Vestmannaeyjar í gær þar sem viðbragðstíminn hafi fyrir vikið orðið mun styttri en ella. Hann vill að ráðamenn skoði möguleikann á að hafa þyrlu á staðarvakt á Suðurlandi til að flýta fyrir sjúkraflutningum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert