Harður árekstur á Bíldshöfða

Jeppabifreið ók í hliðina á fólksbíl á gatnamótum Bíldshöfða og …
Jeppabifreið ók í hliðina á fólksbíl á gatnamótum Bíldshöfða og Breiðhöfða fyrr í dag. Ljósmynd/Ingvar Guðmundsson

Árekstur varð á gatnamótum Bíldshöfða og Breiðhöfða um klukkan þrjú síðdegis í dag þegar jeppabifreið var ekið inn í hliðina á fólksbíl.

Kristján Kristjánsson, rekstrarstjóri hjá Árekstur.is, segir engan hafa sakað en bílstjóri fólksbifreiðarinnar hafi þó verið heppinn að slasast ekki alvarlega miðað við skemmdirnar sem urðu á fólksbifreiðinni. 

Svokallað dráttarspil er framan á jeppabifreiðinni og þykir mikil mildi að ekki fór verr. 

Kristján segir mjög mikið hafa verið um árekstra og tjón í umferðinni í mánuðinum sem er að líða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert