Ættingjar hinna slösuðu á leið til landsins

Mbl.is/Jónas Erlendsson

Margir ættingjar þeirra sem slösuðust í rútuslysinu við Eldhraun, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, á miðvikudag eru á leið til landsins frá Kína. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef kínverska sendiráðsins á Íslandi.

Þar segir einnig að kínverski sendiherrann hér á landi, Liu Mingming, hafi heimsótt hina slösuðu á spítalann í tvígang og að undirbúningur þeirra minna slösuðu til heimferðar sé hafinn.

Þá er íslenskum yfirvöldum, lögreglu, björgunarsveitum, heilbrigðisstofnunum og öðrum sem að slysinu komu þakkað kærlega fyrir störf sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert