Einn útskrifaður af gjörgæslu

Slysið varð vestan af Kirkjubæjarklaustri rétt fyrir hádegi á miðvikudag.
Slysið varð vestan af Kirkjubæjarklaustri rétt fyrir hádegi á miðvikudag. Kort/mbl.is

Einn kínversku ferðamannanna þriggja sem hafa legið á gjörgæsludeild Landspítalans síðan á miðvikudag þegar rúta með 44 kínverska ferðamenn valt skammt frá Kirkjubæjarklaustri hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild. Tveir liggja þar enn þungt haldnir.

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala eru fimm ferðamenn á almennum deildum Landspítala. Vonir standa til að hægt verði að útskrifa tvo þeirra af sjúkrahúsinu í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert