Eiríkur fer fram á bætur

Eiríkur Jónsson lagaprófessor.
Eiríkur Jónsson lagaprófessor. Ljósmynd/Af vef Alþingis

Eiríkur Jónsson lagaprófessor krefur ríkið um miskabætur vegna ólögmætra athafna Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra við skipun í embætti landsréttardómara. RÚV greindi fyrst frá málinu en Eiríkur staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

„Það fór bréf með kröfu um miskabætur og viðurkenningu á bótaskyldu vegna fjártjóns á embætti ríkislögmanns í gær,“ segir Eiríkur í samtali við mbl.is. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um kröfuna. Laun háskólaprófessors eru töluvert lægri en landsréttardómara, en ekki upphæð fylgir þó ekki kröfunni.

Eiríkur er þar með fjórði maðurinn sem krefur ríkið um bætur vegna ákvörðunar ráðherra. 

Nýverið krafði Jón Hösk­ulds­son héraðsdóm­ari ríkið um tugi millj­óna í bætur vegna ákvörðunar dóms­málaráðherra að líta fram hjá hon­um þegar skipað var í embætti dóm­ara við Lands­rétt. Hann var í hópi 15 hæf­ustu um­sækj­endanna sam­kvæmt mats­nefnd.

Hinn 19. desember sl. sýknaði Hæstirétt­ur ís­lenska ríkið af viður­kenn­ingu á skaðabóta­kröfu við Ástráð Har­alds­son og Jó­hann­es Rún­ar Jó­hanns­son í lands­rétt­ar­mál­inu. Ríkið var aftur á móti dæmt til að greiða þeim sam­tals 1,4 millj­ón­ir króna í mis­k­bæt­ur, eða 700.000 kr. til hvors þeirra.

Ástráður og Jó­hann­es voru á meðal 33 um­sækj­enda um embætti dóm­ara við Lands­rétt og meðal þeirra 15 sem dóm­nefnd sam­kvæmt lög­um um dóm­stóla hafði talið meðal hæf­ustu til að gegna því embætti.

Þegar dóms­málaráðherra gerði til­lögu til Alþing­is um þá 15 um­sækj­end­ur sem skipa skyldi dóm­ara vék ráðherra frá niður­stöðum nefnd­ar­inn­ar varðandi fjóra um­sækj­end­ur, þ.a. þá Ástráð, Jó­hann­es, Eirík og Jón.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert