76 fá íslenskan ríkisborgararétt

Frumvarp þess efnis að veita 76 einstaklingum íslenskan ríkisborgararétt var …
Frumvarp þess efnis að veita 76 einstaklingum íslenskan ríkisborgararétt var samþykkt á Alþingi í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lagafrumvarp allsherjar- og menntamálanefndar um veitingu ríkisborgararéttar var tekið til afgreiðslu á þingfundi sem lauk nú rétt eftir miðnætti. 

Frumvarpið var samþykkt með 51 greiddu atkvæði. 7 greiddu ekki atkvæði, þeirra á meðal var Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra. 

76 einstaklingar fá íslenskan ríkisborgararétt með gildi laganna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert