Tólf fengu fálkaorðu

For­seta­hjón­in Guðni Th. Jó­hann­es­son og El­iza Reid ásamt hand­höf­um fálka­orðunn­ar …
For­seta­hjón­in Guðni Th. Jó­hann­es­son og El­iza Reid ásamt hand­höf­um fálka­orðunn­ar á Bessa­stöðum í dag, nýársdag. mbl.is/Kristinn Magnússon

For­seti Íslands, Guðni Th. Jó­hann­es­son, sæmdi í dag tólf Íslend­inga heiðurs­merki hinn­ar ís­lensku fálka­orðu, venju sam­kvæmt á nýársdag. Þeir Íslend­ing­ar sem í dag voru sæmd­ir ridd­ara­krossi eru eft­ir­far­andi:

1. Albert Albertsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Hitaveitu Suðurnesja, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir framlag á vettvangi jarðhitanýtingar

2. Álfrún Gunnlaugsdóttir rithöfundur og fyrrverandi prófessor, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta og kennslu bókmennta á háskólastigi

3. Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar

4. Gunnar V. Andrésson ljósmyndari, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenska fjölmiðla

5. Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir framlag til heilsuverndar og lýðheilsu

6. Haukur Ágústsson fyrrverandi skólastjóri, Akureyri, riddarakross fyrir framlag á vettvangi skólamála og fjarkennslu

7. Lárus Blöndal forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Garðabæ, riddarakross fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar

8. Ólafur Dýrmundsson fyrrverandi ráðunautur, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslensks landbúnaðar

9. Ólöf Nordal myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar

10. Sigfús Kristinsson trésmíðameistari, Selfossi, riddarakross fyrir framlag til atvinnulífs og iðnmennta í heimabyggð

11. Sigþrúður Guðmundsdóttir forstöðukona Kvennaathvarfs, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að velferð og öryggi kvenna

12. Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til samhjálpar og baráttu gegn fátækt í samfélaginu 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert