Náttúra og hugleiðsla í símanum

„Hugleiðsla hjálpar okkur að takast á við hraða og spennu …
„Hugleiðsla hjálpar okkur að takast á við hraða og spennu nútímaþjóðfélags,“ segir Tristan Elizabeth Gribbin. mbl.is/​Hari

Hvernig væri að skjótast í nokkrar mínútur frá vinnu út í iðjagræna náttúruna til að hugleiða? Hvað ef við gætum gert það án þess að fara nokkurn tíma út úr húsi? Upp á þetta býður frumkvöðullinn og hugleiðslukennarinn Tristan Elizabeth Gribbin en sprotafyrirtækið hennar Flow hefur skapað einstakan sýndarheim með persónusniðnum hugleiðsluæfingum.

Á einu augnabliki varpar tæknin okkur frá einum stað á annan. Ekki efnislega en alveg án nokkurs vafa andlega. Þannig tók Tristan Elizabeth Gribbin, frumkvöðull og hugleiðslukennari, blaðamann Morgunblaðsins úr vinnuherbergi Sjávarklasans yfir í iðjagræna náttúru við rætur Snæfellsjökuls. Kyrrðin var aðeins rofin með einstaka náttúruhljóði og upplifunin var eins og að vera út í guðsgrænni náttúrunni á fallegum sumardegi.

„Margir bögglast með byrðar fortíðarinnar á bakinu á sama tíma og óráðin framtíðin veldur fólki áhyggjum og kvíða. Augnablikið, þessi stund, þetta einstaka andartak, verður uppfylling að áfangastað sem alltaf er á næsta leiti,“ segir Tristan  meðal annars í viðtali í Morgunblaðinu í dag, en persónusniðnar hugleiðsluæfingar hennar í sýndarheimi er ætlað að bæta andlega líðan notandans og núvitund hans.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert