Vísindagarðar Háskóla Íslands þróa randbyggð við Hringbraut

Eiríkur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Vísindagarða HÍ og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri …
Eiríkur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Vísindagarða HÍ og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri við undirritun samkomulagsins. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Dagur B.Eggertsson borgarstjóri og Eiríkur Hilmarsson framkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands hafa skrifað undir samning um að úthluta Vísindagörðum þremur lóðum Reykjavíkurborgar undir randbyggð við Hringbraut. Borgarráð hefur samþykkt samninginn.  

Randbyggð er skilgreind sem byggð sem myndar lokaða samfellu eftir ytra jaðri götureits.

Lóðirnar sem um ræðir eru fyrir neðan svæðið þar sem nýi Landspítalinn mun rísa á næstu árum. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að mikilvægt sé að lóðirnar, sem eru nátengdar Landspítalanum, verði nýttar fyrir uppbyggingu þar sem nýtt eru sóknarfæri fyrir heilbrigðistengda þekkingarstarfsemi og frumkvöðlastarf í tengslum við starfsemi sjúkrahússins.

„Þekkingarstarfsemi er einn mikilvægasti vaxtarbroddur í fjölbreyttu atvinnulífi borgarinnar til framtíðar,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri. „Vatnsmýrarsvæðið er lykilsvæði til að nýta þau sóknarfæri sem leiða af því að hafa tvo öfluga háskóla og háskólasjúkrahús í návígi við hvern annan og öfluga og eftirsótta miðborg innan seilingar. Þróun randbyggðarinnar við nýjan Landspítala er spennandi þáttur í að nýta þau tækifæri sem atvinnulífið og vísindasamfélagið hefur á svæðinu,“ er haft eftir Degi í tilkynningu borgarinnar.  

Vísindagarðar Háskóla Íslands munu þróa uppbyggingu lóðanna með sama hætti og á lóðum sem þeim hefur verið úthlutað í Vatnsmýri. Í greinargerð um viðskiptin til borgarráðs segir að mögulegum ágóða sem Vísindagarðar muni hafa af sölu lóðanna til þriðja aðila verði varið til nýsköpunar og í almannaþágu.

Forsaga málsins er sú að nýtt heildarskipulag fyrir nýjan Landspítala við Hringbraut var samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur í desember 2012.

Á svæðinu verða ný mannvirki fyrir Landspítala háskólasjúkrahús og nýtt húsnæði fyrir Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

Í skipulaginu eru þrír reitir auðkenndir sem randbyggð. Þessir reitir eru sunnan við Læknagarð og liggja meðfram Hringbraut að norðanverðu.

Vísindagarðar greiða Reykjavíkurborg 50 þúsund krónur á fermetrann fyrir byggingarrétt með skuldabréfi, alls 750 milljónir króna fyrir 15.000 fermetra byggingarrétt, en alls er byggingarmagn á svæðinu áætlað 19.000 fermetrar með bílakjallara. Verðið byggir á verðmati sem Reykjavíkurborg lét gera vegna lóðanna. Vísindagarðar bera fasteignagjöld af lóðunum frá undirritun samningsins.

Vísindagarðar Háskóla Íslands er félag í 94,6% eigu Háskóla Íslands og 5,4% í eigu Reykjavíkurborgar. Félaginu er ætlað að standa að uppbyggingu lóða í Vatnsmýrinni sem styðja við nýsköpun og vísindarannsóknir. Meðal verkefna félagsins er að skapa umhverfi þar sem slík starfsemi blómstrar. Félagið hefur hlotið viðurkenningu Ríkisskattstjóra sem félag sem starfar í þágu almenningsheilla og hagnaði er eingöngu varið í þágu tilgangs félagsins. 

Uppbygging randbyggðarinnar við Hringbraut mun kallast á við nýsköpunarumhverfið sem er að rísa á lóð Vísindagarða sunnan við Sturlugötu.

Gert er ráð fyrir að uppbyggingu á svæðinu skuli lokið ári 2025.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert