Borgar Þór Einarsson, hæstaréttarlögmaður og aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segist í samtali við mbl.is ekki vera á leiðinni í leiðtogakjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna sem fram fara í vor.
Frétt mbl.is: Jón Karl að hugsa málið
„Ég er ekki að fara í leiðtogaprófkjör hjá sjálfstæðismönnum í borginni. Það hefur legið fyrir lengi,“ segir Borgar. „Það hefur legið fyrir hjá mér síðan fyrir jól að ég er ekki að fara í þetta.“