Yngri börn fari ekki ein í skólann

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að fylgja börnum í …
Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að fylgja börnum í skólann á morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minnir fólk á að fylgjast vel með veðurspá í fyrramálið og fylgja yngri börnum í skólann, en spáð er mjög vondu veðri og Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörum fyrir höfuðborgarsvæðið.

Skólar verða opnir en lögregla bendir á að veður geti seinkað ferðum nemenda til skóla. Þá sé mikilvægt að börn yngri en 12 ára fari ekki ein í skólann, sérstaklega í efri byggðum og þar sem börn þurfa að fara yfir opin svæði á leið sinni í skóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert