Ekkert hægt að fljúga

Allt innanlandsflug liggur niðri enda bálhvasst á suðvesturhorni landsins. Allt millilandaflug hefur legið niðri síðan upp úr miðnætti og er áætlað að næsta flugvél fari frá landinu um níuleytið.

Mjög hvasst er á Reykjanesbrautinni og fer í 35-40 metra á sekúndu í hviðum. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni má gera ráð fyrir að vindur verði í hámarki frá klukkan fimm í morgun til níu. Á suðvesturhorninu eru 20-25 metrar á sekúndu og slagveðursrigning. Eins er mjög hvasst á Kjalarnesi og undir Eyjafjöllum. 

Greiðfært er víða á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir geta verið í innsveitum. Flughált er í Grafningi, í Kjósarskarði og á Fróðárheiði. Mjög hvasst er á Reykjanesbraut, á Kjalarnesi, á Sandskeiði og undir Hafnarfjalli. Á Vestfjörðum er víða hált eða flughált og víða hvasst. Þæfingur er á Hálfdán.

Á Norður- og Austurlandi er víða hálka eða hálkublettir en eitthvað um flughálku í Skagafirði. Snjókoma er á Fjarðarheiði. Með suðausturströndinni er allt orðið greiðfært en þar er ansi hvasst, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert