Eyþór vill leiða í Reykjavík

Eyþór Arnalds gefur kost á sér til að leiða lista …
Eyþór Arnalds gefur kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningum í vor. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Eyþór Arnalds, fram­kvæmda­stjóri og fyrr­ver­andi odd­viti sjálf­stæðismanna í Árborg, tilkynnti á Facebook-síðu sinni nú á sjötta tímanum að hann gæfi kost á sér til að leiða lista Sjálf­stæðis­flokks­ins í Reykja­vík í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­un­um í vor.

„Það er erfitt fyrir ungt fólk að eignast fyrstu íbúð í Reykjavík. Framboð á húsnæði er takmarkað og þess vegna er verðið hátt. Þétting byggðar á einstökum reitum hefur í raun skilað sér í hærra verði og dreifðari byggð á höfuðborgarsvæðinu. Raunfjölgun íbúða er lítil sem engin þegar tekið er tilliti til útleigu til ferðamanna,“ segir Eyþór í færslu sinni.

Þá hafi lestrarkunnáttu barna í grunnskólum hrakað samkvæmt nýlegum rannsóknum og reykvísk börn eigi betra skilið.

Reykjavík sé sömuleiðis í miklum vanda í samgöngumálum og dýrar lausnir með borgarlínu muni auka á vandann með enn meiri þrengslum í gatnakerfinu. „Reykjavík á að vera í fararbroddi í nútímalegum samgöngum en festast ekki í dýrum og þunglamalegum lausnum. Þrengingarnar hafa nú þegar búið til kransæðastíflu í gatnakerfi borgarinnar. Stjórnkerfið hefur stækkað mikið og er dýrt í rekstri. Auk þess er flóknara en áður fyrir íbúa að fá lausn sinna mála. Það er því tækifæri að gera betur og breyta um stefnu í borgarstjórnarkosningunum í vor.“

Segist Eyþór hafa einlægan áhuga á að vinna fyrir fólkið sem býr í borginni við Sundin. „Þess vegna hef ég ákveðið að gefa kost á mér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,“ segir í færslunni.

Mbl.is greindi frá því fyrr í dag að fjöl­marg­ir sjálf­stæðis­menn hefðu þrýst á Eyþór að bjóða sig fram og vísað máli sínu til stuðnings til ár­ang­urs hans í sveit­ar­stjórn­ar­mál­um Árborg­ar.

Eyþór var odd­viti sjálf­stæðismanna og formaður bæj­ar­ráðs Árborg­ar 2010 til 2014.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert