Enn á gjörgæslu eftir eldsvoðann

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Sigurður Bogi

Maðurinn sem var fluttur á Landspítalann eftir eldsvoðann í fjölbýlishúsi í Grafarvogi aðfaranótt þriðjudags er enn á gjörgæslu.

Að sögn upplýsingafulltrúa Landspítalans eru hinir ellefu sem voru fluttir á sjúkrahús eftir eldsvoðana í Grafarvogi og í Mosfellsbæ vegna gruns um reykeitrun, allir farnir heim.

Sex voru fluttir á sjúkrahús úr Grafarvogi og fimm úr Mosfellsbæ. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert