Þarmarnir eru stórkostlegt líffæri,“ segir breski læknirinn Michael Mosley í inngangsorðum nýjustu bókar sinnar Bætt melting – betra líf, sem nýverið kom út í þýðingu Guðna Kolbeinssonar.
Síðan heldur Mosley áfram á persónulegum nótum eins og honum er lagið, segir frá sjálfum sér og beinir orðum sínum til „okkar“ eins og hann gerir reyndar bókina á enda:
„Þegar ég var í læknanámi vildu margir félagar mínir læra um heilann og verða svo heilaskurðlæknar eða þá hjartalæknar. Ég heyrði aldrei nokkurn mann segja að hann ætlaði að helga líf sitt meltingarveginum. Og samt er hann alveg einstakur – líkamshluti sem er tiltölulega lítt kannaður og ég hef nýlega orðið alveg hugfanginn af. Undanfarin ár hafa feiknamiklar rannsóknir farið fram á lífinu í meltingarvegi okkar og breytt skilningi okkar á því hvernig líkami okkar vinnur.“
Sjá umfjöllun um Mosley og bók hans í Morgunblaðinu í dag.