Ferðir strætó falla niður

Ferðir strætó austur fyrir fjall falla niður frá kl. 15 …
Ferðir strætó austur fyrir fjall falla niður frá kl. 15 til kl. 19 til 20 í dag. mbl.is/Eggert

Nokkrar ferðir strætó falla niður vegna stormsins í dag. Ferðir á milli Mjóddar og Selfoss munu liggja niðri á milli kl. 15 og 19/20 en þá verður tekin staðan á færð. 

Leið 51 frá Mjódd kl. 13:00 mun ekki aka lengra en á Hvolsvöll. Brottför frá Hvolsvelli kl. 17:05 og mun vagninn ekki aka lengra en á Selfoss.  

Leið 51 frá Höfn kl. 11:55 mun ekki aka lengra en að Kirkjubæjarklaustri og brottför frá Kirkjubæjarklaustri kl. 17:25 að Höfn. 

Leið 52 frá Hvolsvelli kl. 15:09 að Mjódd fellur niður vegna veðurs. 

Aukabíll vegna Herjólfs fer ekki seinni ferð dagsins frá BSÍ kl. 17:15 og frá Mjódd kl. 17:30. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á straeto.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert