Flutt á sjúkrahús eftir alvarlegt slys

Verið er að flytja fólk sem lenti árekstrinum á slysasdeild.
Verið er að flytja fólk sem lenti árekstrinum á slysasdeild. mbl.is/Eggert

Verið er að flytja fólk á slysadeild Landspítalans eftir árekstur tveggja fólksbíla á móts við Bitru í Flóahreppi í Árnessýslu.

Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi virðist sem um framanákeyrslu hafi verið að ræða og var slysið alvarlegt.

Fólk úr báðum bílum slasaðist í árekstrinum.

Allt tiltækt lið lögreglu og slökkviliðs er á staðnum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var ekki kölluð til vegna slyssins.

Suðurlandsvegur er lokaður um óákveðinn tíma vegna slyssins. Að sögn lögreglunnar er hugsanlega hægt að aka um sveitavegi í nágrenninu.

Tilkynning frá Vegagerðinni vegna slyssins:

Suðurlandsvegur (Hringvegur1) er lokaður um óákveðinn tíma rétt vestan við Skeiðavegamót vegna umferðarslyss. Hjáleið er um Villingaholtsveg (305) og Urriðafossveg (302).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert