Foreldrar sæki börn sín í skóla

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að sækja börnin sín …
Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að sækja börnin sín í skóla og frístundastarf. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Veður hefur versnað á höfuðborgarsvæðinu og eru foreldrar og forráðamenn beðnir að sækja börn sín í lok skóla eða frístundastarfs. Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna suðaustan storms fyrir höfuðborgarsvæðið í dag milli 16.30 og 19.30. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafa virkjað  svokallaða tilkynningu 3 vegna veðurs. 

Börn eru óhult í skóla og frístundastarfi þar til þau verða sótt. Þetta á við börn yngri en 12 ára.

Nánari upplýsingar eru shs.is og á Facebook-síðu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert