Óska eftir vitnum að umferðaróhappi

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns/Sundlaugavegar í gær, miðvikudaginn 10. janúar.

Áreksturinn varð um klukkan 18 þegar Subaru Legacy og Mazda CX-5 rákust saman, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa. Subaru-bifreiðinni var ekið norður Kringlumýrarbraut og Mözdunni austur Borgartún, en ökumaður hennar hugðist aka yfir gatnamótin og austur Sundlaugaveg þegar áreksturinn varð.

Lögreglan biður þá sem urðu vitni að árekstrinum að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið gudmundur.pall@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert