Sjúkraflug til Eyja í miklu hvassviðri

TF-LIF sótti sjúkling til Vestmannaeyja í dag í miklu hvassviðri.
TF-LIF sótti sjúkling til Vestmannaeyja í dag í miklu hvassviðri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, sótti sjúkling til Vestmannaeyja í dag sem þurfti að komast á sjúkrahús í Reykjavík, en sökum hvassviðris gat sjúkraflugvél ekki flogið þangað. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðnin frá Neyðarlínu um hálftólfleytið í dag

TF-LIF fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 12:20 og var haldið þangað í lágum hæðum um Þrengsli og svo með suðurströnd landsins. Þyrlan kom til Vestmannaeyja um eittleytið og var þá veðrið þar orðið mjög vont og aðflugið krefjandi. Af þeim sökum lenti þyrlan við vesturenda flugbrautarinnar þangað sem sjúkrabíll kom með sjúklinginn. TF-LIF fór aftur í loftið klukkan 13:18 og lenti svo á Reykjavíkurvíkurflugvelli hálftíma síðar. Sjúklingurinn var svo fluttur á Landspítalann með sjúkrabíl.

Suðaustanstormur gengur nú yfir landið og til marks um veðurofsann meðan á útkalli þyrlunnar stóð má nefna að flughraði þyrlunnar í mótvindinum á leiðinni til Eyja var 88 hnútar (162 km/klst.) en í meðvindinum á bakaleiðinni fór hann upp í allt að 190 hnúta (352 km/klst.). Heimferðin tók því talsvert skemmri tíma en flugið til Eyja. Bálhvasst var í Eyjum þegar TF-LIF var þar. Vindmælir þyrlunnar mældi hviður sem slógu í 35 metra á sekúndu, sem er fárviðrisstyrkur.

Sóttu veikan sjómann um borð í fiskiskip

Þá sótti TF-LIF veikan sjómann um borð í íslenskt fiskiskip á Deildargrunni, norðvestur af landinu. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð þyrlu laust fyrir klukkan tvö og fór hún í loftið um hálfþrjúleytið. Á meðan fluginu stóð sigldi skipið í átt að landi. Rúmum klukkutíma eftir flugtak kom þyrlan að skipinu. Sigmaður og læknir fóru um borð og undirbjuggu sjúklinginn fyrir hífingu og flug. Þyrlan lenti svo á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan hálfsex og og flutti sjúkrabíll manninn svo á bráðamóttöku Landspítalans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert