Grunur um fjármálamisferli hjá Höfða

Malbikunarstöðin Höfði hf. er í fullri eigu Reykjavíkurborgar.
Malbikunarstöðin Höfði hf. er í fullri eigu Reykjavíkurborgar. Af vef Höfða.

Grunur er um að fyrrverandi deildarstjóri sölu- og fjármáladeildar Malbikunarstöðvarinnar Höfða hafi gerst sekur um fjármálamisferli er hann starfaði hjá fyrirtækinu sem er í eigu Reykjavíkurborgar. Viðkomandi er látinn. 

Samkvæmt tilkynningu frá stjórn Malbikunarstöðvarinnar Höfða barst ábending um mögulegt misferli fyrrverandi deildarstjóra sölu- og fjármáladeildar fyrirtækisins, sem nú er látinn, 21. desember.

Skoðun stjórnenda fyrirtækisins leiddi í ljós að bókhaldsgögn styddu þessar grunsemdir. Stjórn fyrirtækisins og eiganda, sem er Reykjavíkurborg, var þegar tilkynnt um þessar grunsemdir.

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hóf þegar rannsókn málsins. Frumskoðun innri endurskoðunar hefur leitt í ljós að hið meinta misferli nemur rúmlega 30 milljónum króna og er talið hafa staðið yfir á sex ára tímabili, árin 2010-2015. Ekki eru vísbendingar um að deildarstjórinn hafi átt vitorðsmenn innan fyrirtækisins. 

Niðurstöður innri endurskoðunar verða lagðar fyrir endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar, sem hefur það hlutverk að ákveða með framhald málsins. Starfsfólki fyrirtækisins var í dag greint frá þessu máli.

Frekari upplýsingar verða veittar þegar endurskoðunarnefnd hefur farið yfir málið, segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert