Íslendingur með 3. vinning í Eurojackpot

Sjö fengu þriðja vinning í útdrætti kvöldsins, þar á meðal …
Sjö fengu þriðja vinning í útdrætti kvöldsins, þar á meðal einn Íslendingur.

Íslendingur hlaut 3. vinning í Eurojackpot-útdrætti kvöldsins og fékk hann 13.124.780 krónur í sinn hlut, en hann skipti vinningnum með sex öðrum heppnum spilurum frá Spáni, Póllandi, Finnlandi og þremur frá Þýskalandi.

Eng­inn var með all­ar töl­ur rétt­ar í út­drætti kvölds­ins, en einn hlaut 2. vinning og fékk sá 260.308.410 krónur í sinn hlut. Sá miði var keyptur í Danmörku.

Enginn var með fimm réttar tölur í réttri röð í Jóker kvöldsins og heldur ekki fjórar réttar í réttri röð.

Tölur kvöldsins í Eurojackpot voru: 16-17-25-40-44 og stjörnutölurnar voru 2-9.

Jókertölur kvöldsins voru: 7-1-8-3-2

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert